Það var mín gæfa að kynnast Óla Ben. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar hann var 47 ára og ég 18 að hefja störf á Sólheimum. Stað sem hafði verið heimili Óla frá því að hann var barn. Þetta var upphaf 35 ára vináttu. Í Óla átti ég mér fyrirmynd, hann átti vináttu mína og virðingu. ...
Að þora og njóta þess að búa í samfélagi
Miðbærinn er á stuttum tíma orðinn að sannarlegum miðpunkt sem við erum stolt af. Það gekk ekki átakalaust að sjá hann verða að veruleika og vissulega þurfti þrautseigju, trú á verkefnið og dug til að sjá verkefnið ganga eftir. Samfélagið var á tímabili nánast klofið í afstöðu til málsins. Ekki endilega að íbúar vildu ekki uppbyggingu ...
Framtíðarhúsnæði BES á Eyrarbakka
Grein rituð í Dagskránna, þar sem velt er upp hugmynd er varðar framtíðarlausn á húsnæðismálum Barnaskólans á Eyrarbakka. Það er mikilvægt að horfa á möguleika og tækifæri. Þetta er einn möguleiki. ------------------------------- Eitt mikilvægasta verkefni fræðsluyfirvalda í Árborg er að leysa þann vanda sem upp er kominn í húsnæðismálum BES á Eyrarbakka. Fyrir liggur úttekt Eflu ...
Árborg, breytingar í þágu hvers?
Lögð hefur verið fram tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Árborgar. Megin breytingin er að bæjarfulltrúum verður fjölgað um tvo, það er úr níu í ellefu. Mun breytingin ef samþykkt, taka gildi við næstu sveitarstjórnarkosningar, þ.e. í vor. Þessi breyting er vegna lagaskyldu og á grundvelli íbúafjölda sveitarfélagsins, það er íbúafjöldi ...
Elsti barnaskóli landsins umkomulaus í óboðlegu húsnæði
Nú á nýju ári mun Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES) fagna 170 ára afmæli. Þann 25 október árið 1852 hófst skólastarf með stofnun Barnaskóla Eyrarbakka. Það má segja að af virðingu við þá merku sögu sem Barnaskólinn á Eyrarbakka á að þá er skólinn sá eini sem kallar sig enn barnaskóla, aðrir skólar eru ...
Vesturbúðin, fjármögnun á fornleifarannsóknun
Stuðningur sveitarfélagsins Árborgar og Fornleifasjóðs við fornleifarannsóknir á Vesturbúðarhól á Eyrarbakka er mikilvægt skref. Næst er að stækka hóp stuðningsaðila við það verkefni að endurbyggja hús Vesturbúðarinnar. Stutt umfjöllun í Dagskránni.
1.6 milljarða framkvæmd í Árborg
Grein rituð í Dagskránna. Fyrir rúmum áratug voru uppi verulegar áhyggjur af framtíð Litla Hrauns. Fangelsið er einn stærsti vinnustaðurinn í Árborg og hefur starfsemin mikil margfeldisáhrif inn í nærsamfélagið. Bygging á nýju fangelsi á Hólmsheiði kallaði á þeim tíma fram spurningar og áhyggjur. Athyglin hefur ekki verið á Litla Hrauni síðustu ár. Breytingar hafa verið umtalsverðar í ...
Jónsmessan – ræða á Eyrarbakka
Við höfum öll eitthvað fram að færa, styrkleikar okkar og veikleikar eru sem betur fer mismunandi. Í 10 manna bekk eru ólíkir einstaklingar sem eiga í raun það eitt sameiginlegt að búa á sama svæði og að vera jafn gamlir. Í þorpinu okkar hér á Eyrarbakka búa tæplega 600 manns sem eiga einn hlut sameiginlegan. ...
Vöxtur Selfoss eða uppbygging Árborgar
Það er eðlilega forsíðufrétt að nærri 9 þúsund aðilar sæki um 52 lóðir á Selfossi. Í fréttinni segir að gert sé ráð fyrir að íbúum fjölgi um 7% á þessu ári og að áfram verði vöxtur. Þúsundir nýrra íbúa munu flytja á Selfoss á næstunni. Nýr skóli verður opnaður í haust í Bjarkarlandi í bráðabirgðahúsnæði ...
Vatnsklasi
Hugleiðing rituð í Dagskránna, fréttablað Suðurlands. ------------------------- Aðgangur okkar að hreinu vatni á Íslandi er svo góður að við gleymum því hversu lánsöm við erum og hversu mikils virði allt þetta hreina og góða vatn er. Við tölum oft um hversu mikils virði, sjávarútvegurinn er okkur, ferðaþjónustan og hin magnaða náttúra landsins, en við tölum minna um ...