Fjölmiðlar

Hér má lesa og hlusta á viðtöl við Guðmund Ármann Pétursson og finna umfjöllun um störf hans. Efnið nær frá sveitarstjórnarmálum, nýsköpun og menningarlífi á Eyrarbakka til skólamála og réttinda fatlaðs fólks. Dagsetningar miðast við birtingu hjá viðkomandi miðli.

Skólamál og menntun

Tengdir pistlar: Skóli án aðgreiningar er eins og lýðræðið · Ef við meinum það sem við segjum – að þá breytum við menntakerfinu

30. maí 2026 · RÚV
Sérskólar megi ekki vera leið til að færa fötluð börn úr almennu skólakerfi
RÚV leitar viðbragða Guðmundar við áformum um sérskóla og spyr um stuðning við börn í almenna skólakerfinu.

26. janúar 2022 · Dagskráin · umfjöllun
Ályktun hverfisráðs Eyrabakka á myglu í BES
Um húsnæði Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri og kröfu hverfisráðs um framtíðarlausn.

Downs-heilkenni, fjölskyldulíf og skimanir

Tengdir pistlar: Sokkar og Downs heilkenni · Ísland í dag – samtal um lífið, tilveruna og Downs

30. september 2026 · Bylgjan · Bítið
Varhugavert skref í átt að því að búa til „hin fullkomnu börn“
Útvarpsviðtal um nýjar fósturskimanir á Landspítala og siðferðilegar spurningar sem þær vekja.

19. júlí 2025 · Vísir · umfjöllun
Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi
Vísir vísar hér til viðtals í nóvember 2023. Sömu ummæli Guðmundar um samfélag fyrir alla birtust í frétt Vísis 21. mars 2023 um viðtal í Bítinu þann morgun. Hlusta á viðtalið í Bítinu 21. mars 2023.

10. október 2024 · RÚV · Mannlegi þátturinn
Downs-heilkennið í nútíð og framtíð
Guðmundur segir frá erindi sínu á málþingi um fóstur- og nýburaskimanir.

17. maí 2024 · Vísir · Ísland í dag
Viðtal við fjölskyldu Nóa Sæs
Guðmundur og fjölskylda ræða reynslu sína og val foreldra á meðgöngu.

21. mars 2024 · Bylgjan · Bítið
Margt gott gerst í málefnum fólks með Downs en skrefin of stutt
Katla Sif Ægisdóttir og Guðmundur ræða alþjóðlega Downs-daginn.

21. mars 2023 · Bylgjan · Bítið
Sami réttur til lífsgæða
Viðtal við Guðmund sem formann Félags áhugafólks um Downs-heilkennið.

21. mars 2023 · RÚV · fréttaviðtal
Lífsins gæfa að verða foreldri barns með Downs-heilkenni
Guðmundur ræðir foreldrahlutverkið, fjölbreytileika og tækifæri fólks með Downs-heilkenni.

21. mars 2023 · Fréttablaðið · viðtal
Raddir einstaklinga með Downs eiga að heyrast
Guðmundur ræðir þátttöku fólks með Downs á alþjóðlegum degi þess. Blaðsíða 18.

11. apríl 2022 · Bylgjan · Bítið
Er rétt að skima fyrir Downs-heilkenni?
Útvarpsviðtal um fósturskimanir.

26. mars 2022 · Fréttablaðið · Helgin
Ekki galli heldur breytileiki
Birna Guðrún Ásbjörnsdóttir og Guðmundur ræða fjölskyldulíf og upplýsingar til verðandi foreldra. Blaðsíða 38.

Sjálfræði, réttindagæsla og þátttaka

Tengdir pistlar: Ekki taka hjartað úr réttindagæslunni · Viðtal í Síðdegisútvarpinu á Rás 2

24. október 2026 · Morgunblaðið
Til jafns við aðra þjóðfélagsþegna
Sigurður Bogi Sævarsson ræðir við Guðmund Ármann um fimmtíu ára réttindabaráttu Þroskahjálpar og reynslu hans sem foreldris.

2. október 2026 · RÚV · Þetta helst
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Viðtal um sjálfsákvörðunarrétt fólks með þroskahömlun og hvernig starfsfólk getur stutt fólk við að taka eigin ákvarðanir. Hlusta á seinni þáttinn í Þetta helst.

17. ágúst 2026 · RÚV English
Father doesn’t want to deprive son of autonomy over electronic ID issue
Ensk frétt um rafræn skilríki og sjálfræði. RÚV vísar í fyrri ummæli Guðmundar um réttindagæslu fatlaðs fólks.

15. júní 2026 · RÚV · Síðdegisútvarpið
Réttindagæsla fatlaðs fólks
Guðmundur ræðir frumvarp um réttindavernd fatlaðs fólks og hvaða lærdóm megi draga af sögunni.

31. maí 2026 · Vísir
„Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“
Fréttaviðtal um aðgengi að réttindagæslu utan höfuðborgarsvæðisins og meðferð frumvarps um réttindavernd fatlaðs fólks.

15. maí 2026 · Bylgjan · Bítið
Málefni fatlaðs fólks fyrir sveitarstjórnarkosningar
Guðmundur kynnir Flokkahjálp í þætti Bylgjunnar.

13. október 2025 · Þroskahjálp · frétt af landsþingi
Nýr formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Frétt samtakanna af kjöri Guðmundar á landsþingi 11. október og ávarpi hans í kjölfarið.

9. október 2025 · Mannréttindi fatlaðra · hlaðvarp
Viðtal við Guðmund Ármann fyrir formannskjör Þroskahjálpar
Þroskahjálp kynnti viðtöl við bæði formannsefnin þennan dag. Hlusta á viðtalið við Guðmund.

11. mars 2017 · Vísir
Stoltur af íbúum Sólheima og mætir gagnrýni
Guðmundur, þá framkvæmdastjóri Sólheima, svarar gagnrýni fyrrverandi íbúa á kjör, aðbúnað og sjálfræði.

Eyrarbakki, sveitarstjórn og nýsköpun

Tengdir pistlar: Spjall um Eyrarbakka · Eru söfnin á Eyrarbakka vannýtt auðlind?

23. febrúar 2026 · Sunnlenska · frétt
D-listinn í Árborg hættir við prófkjör og stillir upp lista
Haft er eftir Guðmundi sem formanni fulltrúaráðs.

26. febrúar 2022 · Sunnlenska · frétt
Guðmundur Ármann sækist eftir 2. sæti
Greint er frá framboði Guðmundar og áherslum hans í atvinnu- og skólamálum.

21. júní 2021 · Dagskráin · viðtal
Vernd aldamótahúsanna á Eyrarbakka
Guðmundur ræðir vernd byggðarinnar og tækifæri sem hann sér í varðveislu húsanna.

28. september 2019 · Fréttablaðið
Kunni að flokka rusl við lausn úr fangelsi
Umfjöllun um BRIM á Eyrarbakka og plastmengun, með viðtali við Guðmund, upphafsmann hátíðarinnar. Tengillinn opnar blaðið á PDF-formi.

26. september 2019 · Sunnlenska · Sunnlendingur vikunnar
Það blundar í mér húsmóðir
Persónulegt viðtal í aðdraganda fyrstu BRIM kvikmyndahátíðarinnar á Eyrarbakka.

9. maí 2019 · Morgunblaðið · Dægradvöl
Kominn heim á Eyrarbakka
Afmælisviðtal um uppvöxt, störf og kvikmyndahátíðina BRIM. Blaðsíða 56.

22. ágúst 2017 · Bændablaðið
Fara nýjar og spennandi leiðir með mjólkurafurðir
Umfjöllun um vöruþróun í mjólkuriðnaði, þar á meðal verkefni Birnu Guðrúnar Ásbjörnsdóttur og Guðmundar Ármanns um nýtingu broddmjólkur.

22. maí 2014 · Vísir · Oddvitaáskorunin
Viljum gera vel og betur
Spurningar og svör við Guðmund sem oddvita K-lista óháðra í Grímsnes- og Grafningshreppi fyrir sveitarstjórnarkosningar.