Málefni
Það sem skiptir máli.
Málefnin tengjast öll sömu grundvallarspurningu: hvernig tryggjum við að manngildi, réttindi og þátttaka séu raunveruleg í lífi fólks?
Réttindi fatlaðs fólks
Sjálfstætt líf, þjónusta við hæfi, húsnæði, réttindavernd, aðgengi og full þátttaka á jafnræðisgrundvelli.
Siðfræði og manngildi
Heilbrigðissiðfræði, fósturskimanir, dánaraðstoð og spurningar um hvernig samfélagið metur mannlegt líf og fjölbreytileika.
Lýðræði og þátttaka
Kosningar, aðgengi að upplýsingum, notendaráð og raunveruleg áhrif fólks á ákvarðanir sem varða eigið líf.
Stafrænt samfélag
Stafræn þjónusta, rafræn skilríki, gervigreind og krafa um að tækniframfarir útiloki ekki fólk.
Samfélag og ábyrgð
Traust, samheldni, nærþjónusta og sú sameiginlega ábyrgð að samfélagskerfin virki fyrir fólk.
Menntun og tækifæri
Inngildandi skólastarf, framhaldsnám og leiðir sem byggja upp raunveruleg tækifæri í stað lokaðra brauta.