Hugrenningar

Skóli án aðgreiningar er eins og lýðræðið

Við trúum á lýðræði. Ekki vegna þess að það sé fullkomið, heldur vegna þess að við trúum á hugmyndina sem að baki býr. Lýðræðið hefur aldrei verið fullkomið og verður það aldrei. En þegar framkvæmdin bregst dettur okkur ekki í hug að hafna lýðræðinu. Við reynum að bæta það, styrkja og þróa.

Einu sinni höfðu konur ekki kosningarétt. Fólk sem þáði opinberan framfærslustyrk gat líka misst kosningarétt sinn. Þetta þótti eðlilegt á sínum tíma. Í dag finnst okkur það fráleitt. Við breyttum ekki hugsjóninni um lýðræði. Við færðum samfélagið nær henni.

Nákvæmlega þannig eigum við að horfa á skóla án aðgreiningar.

Skóli án aðgreiningar er fyrst og fremst hugmyndafræði. Hugmyndafræði sem byggir á þeirri einföldu sannfæringu að við viljum samfélag þar sem allir eiga heima, allir skipta máli og allir hafa raunveruleg tækifæri til þátttöku. Skólinn er einn mikilvægasti vettvangurinn til að byggja upp slíkt samfélag.

Við vitum hversu miklu það skiptir að fá að tilheyra, taka þátt og að fá að njóta tækifæra á eigin forsendum. Við vitum líka að kerfin okkar geta brugðist, jafnvel þótt viljinn sé góður. Það er einmitt þess vegna sem við þurfum að halda fast í hugsjónina og gera meiri kröfur til framkvæmdarinnar.

Skóli án aðgreiningar þýðir ekki að allir eigi að læra það sama, á sama hátt eða við sömu aðstæður. Það útilokar hvorki sértækan stuðning, einstaklingsmiðað nám né sérskóla. Þvert á móti þurfum við fjölbreyttar leiðir, fagþekkingu og sveigjanleika til að mæta ólíkum þörfum. En þær leiðir eiga að þjóna einstaklingnum og styðja við þátttöku hans. Þær mega hvorki stuðla að aðgreiningu né festa hana í sessi.

Við megum aldrei rugla saman markmiðinu og leiðunum að því.

Það er full ástæða til að gagnrýna framkvæmd skóla án aðgreiningar. Þegar börn fá ekki þann stuðning sem þau þurfa, kennarar standa ráðþrota og foreldrar upplifa að kerfið bregðist, eigum við að hlusta og bregðast við. Þar þarf raunverulegar úrbætur, ekki falleg orð. En lausnin er ekki að hafna hugmyndafræðinni. Lausnin er að gera betur.

Við myndum ekki afskrifa lýðræðið vegna þess að framkvæmd þess er gölluð. Hvers vegna ættum við þá að afskrifa skóla án aðgreiningar vegna þess að okkur hefur ekki tekist nægilega vel að útfæra hann?

Markmiðið er enda stærra en skólinn sjálfur. Það er samfélag þar sem fólk með ólíkar þarfir, hæfileika og forsendur lærir, starfar og lifir saman. Þar sem fjölbreytileikinn er sjálfsagður hluti samfélagsins og hver einstaklingur fær tækifæri til að leggja sitt af mörkum.

Rétt eins og lýðræðið verður skóli án aðgreiningar aldrei fullkominn. En þegar framkvæmdin bregst eigum við ekki að gefast upp á hugsjóninni. Við eigum að læra af reynslunni, axla ábyrgð og gera betur. Samfélag án aðgreiningar verður ekki að veruleika ef við gefumst upp á því að byggja það upp.

Skóli án aðgreiningar er ekki vandamál sem við þurfum að leysa. Hann er hluti af þeirri samfélagssýn sem við þurfum að láta verða að veruleika.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 4. nóvember 2026.

Greinin „Skóli án aðgreiningar er eins og lýðræðið“ eftir Guðmund Ármann Pétursson í Morgunblaðinu 4. nóvember 2026, blaðsíðu 19. Texti greinarinnar er birtur hér að ofan.

Tengt efni
RÚV ræddi við Guðmund um sérskóla og stuðning í almennum skólum
Ef við meinum það sem við segjum – að þá breytum við menntakerfinu
Viðtöl og umfjöllun um skólamál