Barn sem kemst ekki í félagsmiðstöð vegna þess að enginn stuðningur er í boði fær litla bót af fræðslu um mikilvægi vináttu. Unglingur sem situr heima vegna þess að tómstundastarfið er óaðgengilegt þarf meira en hvatningu til að hreyfa sig. Hann þarf raunverulegt tækifæri til að vera með.
Þetta eru dæmi um þær áleitnu staðreyndir sem koma upp í hugann við lestur nýbirtrar skýrslu starfshóps heilbrigðisráðherra um lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna. Hvernig tryggjum við að „öll börn“ þýði í raun öll börn?
Skýrslan hefur margt til síns ágætis. Hún leggur áherslu á félagsleg tengsl, öruggt uppeldi, samfellda þjónustu og jöfn tækifæri til þátttöku. Hún viðurkennir að heilsa og líðan ráðist af aðstæðum barna og samfélaginu sem þau alast upp í. Þessum áherslum ber að fagna og fylgja.
En þegar kemur að framkvæmdinni verða fötluð börn og ungmenni lítt sýnileg. Ekki er skýrt hvernig ryðja eigi úr vegi þeim hindrunum sem börn með þroskahömlun og skyldar fatlanir mæta. Hver á að tryggja aðstoðina? Hver sér um ferðirnar? Hver greiðir fyrir stuðninginn sem gerir barninu kleift að taka þátt?
Það vantar jafnframt alveg tilvísun í samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það er verulegur annmarki á skýrslu sem á að leggja grunn að bættri heilsu og líðan allra barna. Samningurinn þarf að vera leiðarljós við mótun aðgerðanna. Ákvæði hans um aðgengi, þátttöku, heilsu, menntun og rétt barna til að tjá sig eiga beinlínis við um viðfangsefni skýrslunnar.
Að lengja opnunartíma félagsmiðstöðvar er jákvætt. Fyrir barn sem þarf aðstoð skiptir þó mestu hvort einhver sé þar til að veita hana. Að bjóða öllum í tómstundastarf er góð byrjun. Boðið verður fyrst raunverulegt þegar aðstæður gera öllum kleift að þiggja það.
Sama gildir um skólann. Barn getur mætt daglega en samt staðið utan við félagahópinn. Við þurfum að vita hvort barnið á vini, fær að taka þátt og finni að það tilheyri.
Á fjórum sviðum skýrslunnar er sérstaklega mikilvægt að þarfir og réttindi fatlaðra barna verði hluti af útfærslunni frá upphafi.
Í fyrsta lagi þurfa ofbeldisvarnir að ná til barna sem eiga erfitt með að segja frá. Fræðsla um líkama, mörk og samþykki þarf að vera skiljanleg og aðgengileg. Börn þurfa öruggar leiðir til að leita aðstoðar og starfsfólk þarf þekkingu á ólíkum tjáskiptaleiðum. Barn sem getur ekki sagt frá með orðum á sama rétt á vernd og önnur börn. Við berum ábyrgð á að það fái leið til að láta í sér heyra.
Í öðru lagi þarf kennsla í félags- og tilfinningafærni að taka mið af ólíkum þörfum. Sama á við um aðferðir við bekkjarstjórnun. Þegar barn sýnir vanlíðan í hegðun sinni þarf að kanna hvað það er að tjá, hvaða stuðning vantar og hverju þurfi að breyta í umhverfinu. Árangur verður að meta út frá öryggi, vellíðan, sjálfræði og þátttöku barnsins. Það er ekki nægilegt að barn hafi hljótt um sig.
Í þriðja lagi þarf að vanda reglur um skjánotkun. Fyrir sum börn er spjaldtölva rödd þeirra, hjálpartæki við nám eða leið til að skilja og skipuleggja daginn. Almennar takmarkanir mega ekki svipta þau nauðsynlegum stuðningi. Vernd gegn skaðlegum áhrifum stafræns umhverfis þarf að fara saman við aðgengi að þeirri tækni sem eykur sjálfstæði og þátttöku.
Í fjórða lagi þurfa aðgerðir um hreyfingu og næringu að taka mið af ólíkri getu og þörfum. Hreyfing þarf að vera aðgengileg og gefa börnum kost á ánægju og samveru. Við skólamáltíðir þarf að huga að skynþörfum, næringarvanda og aðstoð við að borða. Gæði máltíðar ráðast líka af því hvort barn geti raunverulega nærst og liðið vel við matarborðið.
Þá skiptir máli hverjir sjást í gögnunum. Í skýrslunni er lagt til að þátttaka í tómstundum verði mæld eftir efnahag og tungumála- og menningarbakgrunni. Fötlun og stuðningsþarfir þurfa líka að vera sýnilegar. Annars getur meðaltalið batnað án þess að börnin sem mæta mestum hindrunum finni nokkurn mun.
Skýrslan tekur fram að aðgerðirnar hafi ekki verið kostnaðarmetnar. Þar reynir á stjórnvöld. Stuðningur kostar fé, krefst starfsfólks og þarf skýra ábyrgð. Hann verður að fylgja fyrirheitunum. Jafnframt þarf að tryggja samfellu þegar skólastigi lýkur og við tekur frekara nám, starf eða önnur þátttaka í samfélaginu.
Landssamtökin Þroskahjálp vilja leggja sitt af mörkum til þessarar vinnu. Börn og ungmenni með þroskahömlun þurfa sjálf að eiga þar rödd og áhrif, ásamt fjölskyldum sínum. Samráðið þarf að vera aðgengilegt og fara fram meðan enn er hægt að móta ákvarðanirnar.
Markmiðið er einfalt, Að geta farið með. Eignast vini. Verið öruggur. Fengið aðstoð þegar hennar er þörf. Fundið að maður tilheyri.
Það er mælikvarðinn sem skiptir máli þegar við segjum öll börn.